jæja…þannig er mál með vexti að ég hef ekki oft dreymt fyrir hlutunum eða dreymt þegar hlutirnir gerast…en í vetur gerðist það þegar ég var sofandi að mig dreymdi að ég væri niður á körfuboltavelli með vinum mínum og við vorum eitthvað að skemmta okkur. þá kemur allt í einu einhver furðuvera sem reynist vera belja með mannshaus(mjög skrítið en þannig var þetta) og hún fór að vera með leiðindi og við vorum allir orðnir þétt pirraðir á þessu helvíti. á endanum tók vinur minn sveðju einhversstaðar frá og hjó höfuðið af þessum gaur. við auðvitað panicuðum og allt það, en svo vaknaði ég.

Svo frétti ég daginn eitthvað sem lét mig hugsa hvað þessi draumur þýddi.
ég á nefninlega vinkonu úti í sveit og þau eru með mjólkurbú. Málið er að systir hennar á kærasta sem var í rauninni beljan í draumnum. Málið er að hann hengdi sig.

semsagt þessi maður var hann, og beljulíkaminn var á tengslin við sveitina, og þegar hann hjó hausinn var þá fyrir það að hann hengdi sig… :S ég var drulluhræddur af einhverjum ástæðum því ég hef aldrei dreymt svona augljóst fyrir hlutum..

viljið þið gera það fyrir mig þið sem hafið engann áhuga á þesssu að koma ekki með nein niðurdrepandi comment…

——–
DaZerT