Ég trúi því að ég get gert miklu meira en margur heldur og meira en margur vill að ég viti að sé hægt. Með frekar einföldum leikfimisæfingum í höfðinu er hægt að leysa ótrúlega mikla orku úr læðingi sem hægt er að stjórna að eigin vild og stýra. Ég lærði aðferð til þessa sem heitir “Transcendental meditation” Innhverf Íhugun og svínvirkar. Þetta hefur ekkert með trú að gera heldur leikfimi í hausnum, eitthvað sem vísindasinnaðir einstaklingar ættu að geta kyngt án þess að það standi mikið í þeim. Þessi orka er heldur ekki frá guði eða geimverum heldur eitthvað sem líkaminn minn býr til en er algjörlega stjórnlaus ef menn kunna ekki að beisla hana. Ekki á nokkurn hátt slæm orka heldur óttalega gagnslaus orka sem getur orsakað (að ég tel), ef óbeisluð, t.d. einbeitingarleysi, áhugaleysi og ofvirkni. Þessi orka getur ef beisluð rétt, lagað marga kvilla líkamans eða komið í veg fyrir þá. Hún er grunnurinn að líkamlegu heilbrigði og þessa orku ber að virða ekki vanmeta. Í lokin vil ég spyrja lesendur hvort einhver þeirra viti hvar hægt er að læra TM á íslandi?
Stattekki einsog þvara, gerðeinsog jesú.