Í nokkra mánuði á seinasta ári, var mig alltaf öðru hvoru að dreyma það að ég væri ólétt. Í sumum draumunum eignaðist ég barnið en ekki alltaf. Ég held ég hafi aldrei fengið að sjá barnið og í þeim draumum sem ég átti barnið var ég alltaf að bíða, annaðhvort eftir að fá að sjá barnið eða eftir fjölskyldunni.

Ég var ekki með áhyggjur af því að verða ólétt og þessvegna myndi mig langa að vita hvað þetta táknaði.