Einu sinni dreymdi mig draum þegar ég var sofnaður eftir að það var búið að sækja mig hjá frænku minni þá dreymdi mig að ég væri í húsi frænku minnar.Það var þannig að ég uppgötvaði í draumnum að það væri morðingi í húsinu og það var sko fult af fólki eitthvað sem ég þekkti þarna og eitthvað sem ég þekkti ekki það var veisla og gleðiskapur. ég var að flýja heilengi undan morðingjanum og faldi mig sum staðar sá frænku mínar vera þarna mjög skýrt og fór ég svo út úr því herbergi fór aðeins áfram og þá sagði morðingin eitthvað man ekki hvað og ég fann hroll fara yfir mig og kulda og ég hugsaði líf mitt er búið ég dey! og síðan skaut morðinginn mig í magann og ég leit niður á mig þar sem skotið var í mér og blóð og síðan datt ég niður og heyrði að morðinginn flúði ég var svona 17-18 ára í draumnum og ég er að velta því fyrir mér hvort þetta eigi eftir að gerast! en samt er eitt skrýtið þau eru flutt úr húsinu fyrir 1 og hálfu ári þannig að ég veit ekkert hvað þetta getur táknað.
Ef þið getið ráðið þetta þá endilega segja mér ráðninguna ef ekki þá bara koma með eitthvað.
(\_/)