Mig dreymdi að ég væri hjá einhverjum og þessi einhver fór eithvert(klósett eða eithvað) og ég sá rubbisk kubb sem næstum því var búið að klára nema efstu röðin. Þetta var soldið skrítinn kubbur og sú hlið sem ég var að reyna að fá var full af pínulitlum tölum. Það eina sem ég fæ út þegar ég reyni að fá efstu röðina rétta er enþá meiri ruglingur í kubbnum. Þá kemur þessi einhver sem átti kubbin og sagði að það væri í lagi að ég hefði ruglað honum.