Þetta kom reyndar ekki fyrir mig heldur pabba minn, en ég væri til í að fá að vita hugsanlega hvað þetta gæti verið.
Það er ekki svo langt síðan að þetta gerðist, þá var pabbi minn aleinn heim og var sofandi. En svo allt í einu heirði hann greinilega kallað nafnið hans mjög hátt. Fyrst þegar að hann sagði mér þetta var ég viss um að þetta hafi verið ég því þegar þetta gerðist lág ég á spítala og var mjög veik, en hann taldi að svo væri ekki því í fyrst lagi var þetta karlmanns rödd og í öðru lagi var kallað nafnið hans. Hann sagði að þetta hefði verið mjög líkt rödd eins nágranna okkar.
Ef einhver hefir einhverja hugmynd um hvað/hver þetta gæti hafað verið þá þætti mér gaman að vita það.
Kveðja
Mink