Mig dreymdi mjög skrýtinn draum núna fyrir stuttu.

Mig dreymdi að ég hefði verið að labba við Rauðavatn með vini mínum og það hefðu komið 2 gaurar og byrjað að rífa kjaft. Það endaði með að annar strákurinn tók upp byssu og skaut mig í hausinn. Ég fann aldrei sársauka í draumnum heldur einhverja skrýtna, þægilega tilfinningu, svo sveif ég allt í einu úr mínum eigin líkama og sá mig sjálfan liggja á jörðinni og blóð út um allt og vinur minn og strákarnir horfnir. Ég fór heim til mín og sá lögregluna tala við mömmu mína og pabba og ég reyndi að tala við þau en það tók enginn eftir mér. Ég fór heim til vinar míns en það heyrði enginn í mér þar. Í endann á draumnum fór ég í mína eigin jarðarför og endaði draumurinn þegar kistan var sett ofan í jörðina.

Það skrýtnasta er samt að alltaf þegar ég sé einhvern deyja í sjónvarpinu þá fæ ég þessa tilfinningu.

Veit einhver hvort þessi draumur merki eitthvað og hvað þá?

ekkert skítkast takk…