Ég hef sent inn kork um þessa sömu drauma áður en þetta er farið að ske svo oft að ég er farin að verða hrædd…

En já þetta er þannig að ég ligg uppí einhverju eins og rúmi inní stóru herbergi og öll ættin mín, allir vinirnir og bara fólk sem ég hef séð örfáu sinnum sitja öll hægrameginn við mig og gráta… Ég svona reyni að teygja mig upp til að spyrja hvað sé í gangi en ég get ekki lyft mer upp… Svo heyri eg einhvern mann segja mjög viðrulega eins og pínu í fjarska (erfitt að heyra útaf öllum grátnum):eitthvað,18 Ágúst.. Svo koma nokkrir karla og lifta “rúminu” mínu upp og labba með mig út og allir á eftir… Síðan er ég bara látinn síga hægt ofan í holu með öll andlit ættingja minna fyrir ofan mig… Síðan er bara mokað yfir og allt verður svart…
Þá reyni ég að öskra en ekkert kemur, ég reyni að hreyfa mig en ég er bara lömuð, finn ekki fyrir neinu…. Það eina sem er ennþá virkt er heilinn…. Og þá fer ég mikið að hugsa: Er svona að deyja?…. bara stuck there í 100000 aldir???…Ætli ég losni héðan?…

Þetta er óþægilegt og ég vakna oft skjálfandi á morgnanna eftir þetta, og festist bara í þessari hugsun yfir daginn og er hrædd við að fara að sofa á kvöldinn…

Því ég er búin að finna það út eftir nokkur svona skipti að eitthvað á eftir að gerast 18. Ágúst, og ég verð að mestu leyti grafin í Fossvogs kirkjugarðinum þarna, ég man meira að segja hvernig umherfið er og ég er að pæla í að leyta af þessum stað :(

Getur einvher túlkað þetta fyrir mig!?!?!?
And let me tell you, she is not the brightest bulb in the tanning bed!