Andrew D. Chumbley dó í fyrradag þann 16 sept. á afmælisdaginn sinn. Dánarorskök var hjartaáfall útfrá alvarlegu astmakasti.

Hann var aðeins 37 ára að aldri.

Andrew var stofnandi Cultus Sabbati reglunar og skrifaði meðal annars bókina Azotea sem er betur þekkt af kunnugum sem Dragon Book of Essex, bókin er þekkt sem eitt stórkostlegasta undur í dulspekiheiminum.

skrif og kensla Andrew Chumbley eru búin að hafa gríðarleg áhrif á mig og mína iðkun í gegnum árin.

Ég kveiki á kerti þær fimm nætur sem hann á eftir á Ugluslóðunum þangað til hann kemst heim
og Ég hvet alla þá kunnugu bræður og systur sem láta þetta sig máli skipta að gera hið sama.

Hans verður sárt saknað í dulspekiheiminum.