Í nótt dreymdi mig mjög skrýtin draum. Ég held að þessi draumur tákni eitthvað en það gæti verið eitthvað rugl bara í mér. Þannig að ég ákvað að segja ykkur hvað mig dreymdi og fá álit hjá ykkur um hvað ykkur finnist um hann. Og ef ég geri stafsettningarvillur þá byðst ég afsökunar á því og byð ykkur um að vera ekkert að tala um það :).

Mig dreymdi að ég æfði sund og á hverjum degi fórum við í Smábátahöfnina(lítil höfn fyrir litla báta :)) og svo sagði þjálfarinn við okkur krakkana sem æfðu að það væri keppni hjá okkur á morgun og að við yrðum að mæta. Um leið og hann sagði þetta þá leist mér ekkert á það og var ekki viss um hvort ég vildi fara. Ég vissi eitthvern veginn að það myndi eitthvað gerast.
Jæja, ég fór heim og sagði foreldrum mínum að ég væri að fara að keppa á morgun og þau sögðu mér að ég ætti að taka þátt, að ég yrði bara að gera það. En ég sagði við þau að mér lytist ekkert á þetta, það væri eitthvað að en mamma bennti á hurðina og sagði mér að fara að keppa. Ég labbaði út og var allt í einu komin hjá Smábátahöfninni og stóð á einhverjum hól(sem er ekki þar í alvörunni) og ég sá sjón sem var mjög óhugnaleg! Himininn var dökk,dökk grænn og svartur. Skýin voru dökkgrá og kuldaleg. Hafið var blásvart og í hafinu voru þúsundir hvala. Það er mjög erfitt að lýsa því hvernig að þeir voru. Ég sá aldrei ,,andlitið" á neinum hvali, ég sá bara sporðana og búkinn þeirra. Þessir hvalir voru steypireiðar en samt voru þetta háhyrningar(vona að einhver skilji þetta). Og þeir voru allir órólegir. Virtust allir æstir, þeir hreyfðu sig aldrei úr stað, þeir voru alltaf á sama staðnum. Og þjálfarinn sagði að keppnin væri þannig að við yrðum að synda til Reykjavíkur(það er hægt að sjá í Reykjavík frá Smábátahöfninni). Við áttum að synda fram og til baka þó svo að þessir hvalir höfðu verið þarna. Ég horfði á hafið og mér leið illa. Ég vildi ekki keppa. Svo leit ég yfir allt svæðið og ég varð hrædd og svo vaknaði ég.

Þetta var mjög dökkur draumur, endirinn allavega. Og mömmu er búið að dreyma dökka drauma núna 7 daga í röð.

Oft þegar að mig hefur dreymt eitthvað þá merkir það að eitthvað muni gerast og þá hefur alltaf eitthvað gerst um leið og ég er búin dreyma draumana. Og ég er svo hrædd um að þessi draumur þýðir að einhver muni deyja af því að hann var svo dökkur og kuldalegur og óhugnalegur. Þýðir þessi draumur eitthvað? Hvað finnst ykkur? Hefur ykkur dreymt svona óhugnalega drauma og eitthvað gerst?