Hefur einhver lesið bókina Celestine handritið? Mig langar að vita hvað fólki fannst um hana og hvaða áhrif hún hafði á þá sem lásu hana. Persónulega fannst mér bókin algjör snilld og tel að hún hafi breytt lífi mínu til hins betra.
Haldið þið að heimurinn geti orðið einsog sagt er frá í bókinni? Trúið þið að við getum breytt heiminum og orðið miklu meira andlegri ef við vinnum markvist að því að breyta hugarfari okkar og vinna í því að upphefja sál okkar?
Endilega skrifið mér og segið skoðanir ykkar á þessu öllu, sama hverjar þær eru. :)