Ég er nokkuð hræddur við drauga og svona fleira í þeim dúr og er ég nú farinn að halda að það sé draugur í húsinu mínu. En þar sem ég veit ekki mikið um svona mál hef ég ákveðið að spyrja hvort það sé eitthvað til í þessu hjá mér.

En alla vega, ástæðan fyrir því að ég held að það sé draugur eða draugar í húsinu mínu er sú að það kemur stundum fyrir að þegar ég er búinn að loka hurðinni inn í herbergið mitt á kvöldin og allir eru farinir að sofa nema ég kemur oft einhver dynkur á hurðina hjá mér, ég hef aldrei þorað að opna hurðina og gá hvort það er einhver frammi. Svo var líka eina kvöldið þegar allir voru sofnaðir í húsinu fannst ég mér ég heyra einhvern tala frammi á gangi og þorði ég ekki að gá heldur hélt ég bara fyrir eyrun þangað til ég sofanði.

Ég hef talað um þetta við vini mína en þeir segja að þetta sé bara ýmindun í mér og segja að það séu ekki til draugar. En nú spyr ég er þetta bara ýmdun í mér eða er draugur/draugar í húsinu?<br><br>_______________________________________
There are three ways to do things:
the right way,
the wrong way
and the Max Power way