Um daginn þá dreymdi mig að ég væri á snekkju með Gunna kærastanum mínum, það var partý í gangi og fullt af fólki á snekkjunni, ég var að tala við vini mína sem heita Árni og Sara, en ég var einhvað þreytt svo að kærastinn minn sagði mér að fara að sofa. Þá vaknaði ég í allvöru leit á klukkuna og fór aftur að sofa, þegar ég sofnaði aftur dreymdi mig að ég væri að koma út úr káetunni á snekkjunni, þá var mikið af fólkinu farið en samt slatti eftir, kærasinn minn var að tala við mann sem heitir Björn/Bjössi en sagðist nauðsinlega þurfa að tala við mig á eftir, þá fór ég aftur inn í káetuna og fór að sofa. Þá vaknaði ég aftur í allvöru en þegar ég sofnaði aftur dreymdi mig að ég væri að koma út úr káetunni aftur og nú var ég ein með kærastanum mínum á snekkjunni, við horfðum tvö ein á sólarlagið, en svo fór hann niður á eitt hné og bað mín og ég játaðist honum. Eftir þetta vaknaði ég.

( ég veit þetta er voða væmið í endann :S )
Hvað í ósköpunum þýðir þetta???? Ég skrifaði þetta niður og sýndi kærastanum mínum þetta og hann sagði bara að þetta benti bara til þess að ég væri yfir mig ástfangin af honum
(sem er satt, hljómar líka soldið Egóistalega :S )en mig langar að vita hvað þetta þýðir.
Plís einhver að segja mér það eða segja mér hvað ég á að gera, því ég er búin að dreyma þennan draum lengi.

Hrundapund.<br><br>Ég er ljóska og verð alltaf ljóska hvað sem allir segja!!!! Ég er að gera Áheitalista til að fá restina af Ríkiljóssins gefið út á íslensku ef þið viljið vera á honum sendið mér þá skilaboð :D það vantar 32 á listann :D:D
one, two, freddy's coming for you