Mig hefur dreymt núna undanfarið sama drauminn. Í honum kemur fram afi minn sem er nýlega dáinn og hann er að tala um það að hann sé búinn að missa samband við e-a vegna þess að hann/hún sé sofnaður/sofnuð og sofi svo fast. Þetta gerist alltaf í stofunni heima hjá ömmu minni og afa. Það er stundum sem amma mín kemur líka fram í draumunum en þá segir hún ekki neitt heldur stendur bara þarna, ég tek það fram að hún er líka dáin nýlega.

Ef einhver hefur einhverja hugmynd um hvað þetta þýðir þá væri ég mjög mikið til í að vita það.

kv.
Mink