hæ hæ

mig dreymdi nýlega tvo drauma með stuttu millibili sem ég hafði svolítið gaman af en fannst einnig nokkuð merkilegir, ég hef flett í draumráðningabókum en finn lítið um svör þar, þannig að ég ákvað að leita hingað, þótt það virðist sem að það sé lítið um svör hér… :)

Fyrri draumurinn er eitthvað á þessa leið, mestan hluta af draumnum sem ég man óljóst þá er ég að flakka um hótel með strák, þessi strákur er ekki til í raunveruleikanum og hef ég aldrei séð hann. Það gerist ósköp lítið nema hvað svo virðist sem að við séum að leita að einhverju. Hótelið er mjög stórt, vítt til veggja og allt skjanna hvítt og bjart. Við erum svo að fara fá okkur að borða og fer ég niður í andyri og sest þar því strákurinn ætlar að skipta um föt. Andyrið er eins og annað í hótelinu mjög stórt, hátt til lofts og vítt til veggja, allt mjög stílhreint og bjart. Í andyrinu er statt fullt af fólki sem ég kannast við frá mínu daglega lífi ég sé einn félaga minn sem situr hjá mönnum og virðist vera upptekinn svo ég sest hjá tveimur konum sem ég þekki og bíð eftir stráknum sem ég hef verið að flakka um hótelið með, ég sé svo út undan mér að félagi minn gengur fram hjá mér og veit ég að hann er einnig að fara skipta um föt fyrir matinn. Stuttu seinna birtist hann íklæddur skær appelsínugulum jakkafötum og hárrauðum rúllukragabol og finnst hann greinilega vera mjög flottur. Ég vakna fljótlega eftir þetta og hafði strákurinn ekki komið aftur. Það sem mig langar til að vita er merking litanna í þessum draumi, hvíti liturinn og svo þessi skæri klæðnaður sem félagi minn birtist í.

Seinni draumurinn var svona. Ég er stödd inn í fjárhúsi og inn í fjárhúsinu er gerði. Fyrir innan gerðið er einn hrútur og fullt af kindum, allar kindurnar eru að reyna komast að hrútnum. Ég og fleira fólk höngum á gerðinu og fylgjumst með, fyrir utan gerðið eru nokkrar kindur sem bíða þess að komast inn í gerðið, einni kindinni virðist vera eitthvað illa við mig því hún byrjar að stanga mig, ég reyni að sparka henni í burtu en rollan lætur sig ekki og heldur áfram að stanga mig. Ég hef lítið fundið í draumráðningabókum um sauðfé nema hvað að dreyma hvítt sauðfé sé fyrir hríð og snjókomu, og þótt að rollurnar hér hafi verið hvítar þá efast ég stórlega um að það eigi við í þessu tilviki.

Jæja einhverjar tillögur? :)<br><br>kveðja batteri ;)
kveðja batteri ;)