þetta er svona Hmm frekar óþæginlegt verð ég að segja.. Alla vega þá er mig búið að dreyma martaðir alveg bara stanslaust í marga marga daga.. núna síðast dreymdi mig að frænka mín væri dáin og ég væri í jarðaförinni hjá henni.. ég vaknaði grátandi með alveg þvílikan hnút í maganum..
Svo hefur mig dreymt að eðlurnar mínar hafi breyst í krókudíla sem væru að reyna að brjótast úr búrinu.. þetta gerðist allt inn í herberginu mínu og þegar ég vaknaði þurfti ég nauðsinlega að athuga hvort þær væru ekki eins litlar og þær eiga að vera..
Þetta eru alls konar svona draumar.. Vakna alltaf alveg í algjöru sjokki(gæsahúð og svoleiðis).. á orðið erfitt með að sofna á kvöldin út af þessu..

Hingað til hef ég aldrei átt erfitt eða i nokkru vandamáli með svefn..

Veit einhver hér hvað þetta gæti táknað?