Eftir að ég mannycalavera og samfisher höfðum gert þetta með bloody mary og ég hafði séð andlit í speglinum þá ákváðum við að prófa andaglas.Við redduðum okkur spjaldi sem mamma samfisher átti og var inni í skáp, síðan fundum við glas fórum inn til hans samfisher og slökktum ljósið.Svo byrjuðum við fyrst kom andi sem hét Filip Grant og hann sagði lítið gagnlegt blaðraði eitthvað um fyrri líf því að mannycalavera var svo vitlaus að spyrja.En svo kom gömull kona að nafni Róshildur og sagði okkur frá því þegar hún var ung og hvernig hún dó, en hún var úti að ganga og rann í hálkunni og enginn fann hana svo hún fraus í hel, þetta gerðist árið 1954.Svo kom lítill strákur frá Írak í glasið en hann dó fyrir stuttu og var en svoldið hræddur, við spurðum hann hvort einhver okkar yrði ríkur, enginn varð það, strákurinn hét Akhmed Blarhen Muhammed, og varð fyrir sprengju í írak.Við töluðum við marga anda og allir sögðu okkur eitthvað um lífið og svoleiðis, en ekkert hræðilegt gerðist, við vorum samt svoldið stressaðir.Loks gerðist svoldið skrýtið við spurðum hvort einhver andi væri í glasinnu og glasið kipptist til og fór hratt á já, hinir andarnir höfðu allir verið munn rólegri, en þessi hann var eiginlega bara reiður hann blaðraði eitthvað og sagðist heita Edward Turrnington III og var brjálaður aðalsmaður frá Englandi (hann sagðist ekki vera það heldur þjónn guðs).Seinna eftir mikið röfl um að refsa ´´Skítugu konunum´´ þá sagðist hann hafa blekkt löggunar.Hann sagðist vera Jack The Ripper og að hann hefði verið að refsa hórunum en svo hafði hann heyrt guð segja sér að verki hans væri lokið…..í bili og að hann yrði að fremja sjálfsmorð og snúa aftur seinna.Edward sagðist ætla að koma aftur á þessari öld til að halda áfram að refsa þeim sem hlýða Satan.Auk þess sagðist hann ekki bara ætla að drepa hórur í þetta skipti heldur alla saurlífsseggi.Þá urðum við skít hræddir, því við erum ekki beint sómapiltar og við slepptum allir fingrunum af glasinu, sem maður á ekki að gera því að andinn getur sloppið út úr glasinu, nema að maður fari með bæn sem við gleymdum og föttuðum það ekki strax.Seinna fórum við mannycalavera heim til okkar og samfisher varð eftir því að hann átti heima þarna.En hann sagði okkur frá því að hann hafði heyrt óp og einhvern hlaupa um húsið um nótt þegar hann var að fara að sofa.Daginn eftir í skólanum var hann með rosalegan bakverk og í leikfimi sáum við svaka klór för á bakinu á honum.


P.S þetta er alveg satt og ég vill þess vegna ráðleggja fólki að fikta ekki með hið yfirnáttúrulega, samfisher getur ekki lengur sofið í húsinu og gistir því heima hjá frænda sínum