Einu sinni fóru ég og aðrir tveir notendur huga, Fuckface og SamFisher, að prófa að leika okkur með yfirnátturuleg öfl, andaglas og svoleiðis. Fuckface hafði einhverstaðar lesið að ef maður færi inn í dimmt herbergi og segði Hell Mary þrettán sinnum, hærra og hærra fyrir framan spegil kæmi kona fyrir aftan vinstri öxlina, og stingi úr manni augun eða kláraði andlitið af, en þegar maður hefði sagt Bloody Mary þrisvar ætti hurðin á herberginu að verða öll blóðug, í sjöunda skiptið á Satan að birtast í speglinum. Við fórum í skæri, blað og steinn hver ætti að segja Bloody Mary fyrir framan spegilin, ég vann með því að gera stein. Þá voru Fuckface og SamFisher að keppast um hvor ætti að segja Bloody Mary, Fuckface varð fyrir valinu. Við fórum inn í herbergið hjá SamFisher en þar var ekki nógu dimmt svo við fórum inn á baðherbergið hans. Ég og SamFisher brostum, þetta var “stressbros”, útaf stressi. Fuckface byrjaði, Bloody Mary ómaði í herberginu hærra og hærra ég og SamFisher vorum í hnút, við vissum ekkert hvað ætti að gera ef Bloody Mary kæmi í alvöru, það var ekkert plan, en við héldum samt áfram. Í áttunda skiptið sá Fuckface rautt, illskulegt, öskrandi andlit á speglinum, það hvarf þegar ég gekk skyndilega framhjá. Ég og SamFisher sáum ekkert en Fuckface gat svarið fyrir að hafa séð eithvað.
Ég vildi ekki nefna nein nöfn í söguni, þó að notanda nöfnin geri söguna “óscary” þá vildi ég ekki nefna nein alvöru nöfn.