Týnda stjarnan
Fantasía I

Alein ég reika
í rökkri háloftanna.
Ég finnst ekki,
ég finnst hvergi,..
fyrren ljós myndast
í lofthjúp alheims.
En mín verund mun finnast
í tilverunni.

Ég mun finnast og lýsa
leiftrandi ljóslogum
nýrra lifandi örvera.
Ég mun koma
og birta þér til Verundar.
Ég mun koma og færa í nyt
Vitundar.

Ég hef skroppið saman
á árþúsundum 13 milljóna ára,..
allra vera og manna.

Ég mun birtast
er degi hallar
Ég mun birtast
er dagur rís!