Ég er með eina spurningu sem ég vona að einhver hérna geti kannski hjálpað mér með, því ég er forvitin.
Ég sé ekki árur, en virðist þó geta fundið fyrir þeim, og veit hvernig þær eru þó ég sjái þær ekki. Þannið er að það er strákur sem er mikið í kringum mig. Hann er ekki með neitt ofsalega óvenjulega áru, en þó er eitt sem mér finnst mjög skrýtið við hana, sem ég hef aldrei fundið fyrir hjá neinum áður. Það er hiti. Ég hreinlega finn hitann stafa af honum, jafnvel úr margra metra fjarlægð, og ég verð yfirleitt að vera mjög nálægt manneskjum til að finna eitthvað. Þetta er ekki líkamshiti, þetta er einhvernveginn öðruvísi, og ég held að þetta sé eitthvað tengt árunni hjá honum … er einhver sem getur frætt mig um hvað þetta er?
-Roses are red, violets are blue, sugar is sweet, and so are you.