Góðan daginn, svo leiðinlega vill til að móðir mín lést í morgun,´mér er búið að líða ótrúlega ílla síðan en huggaði mig við það að kannski er einhvað eftir dauðann. Ef svo er vil ég endilega fá að komast í samband við miðil sem gæti haft uppá henni, það var svo margt sem mig langaði til að segja henni en gerði þvímiður ekki.
Svo ég spyr, vitiði um einhverja miðla sem virka?

Svo er það annað, þið sem hafið dáið í örfáar mínútur, ef einhver svoleiðis les þetta eða þekkir einhvern sem hefur gert það, viljiði vinsamlegast lýsa fyrir mér hvað gerðist og hvernig ykkur leið. Ég sá að á síðustu sekúndunum kom eitt tár og hún kreppti augnlokin. (hún var meðvitundarlaus síðustu klukkustundirnar)

Ég gæfi allt til að fá að tala við hana aftur, bara einusinni enn.

Með fyrirfram þökkum. <br><br>&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;
&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;