Ég er bara að forvitnast, hefur einhver lent í því að standa upp um nótt, t.d. til þess að fá sér vatna eða eitthvað, og einfaldlega finna ekki dyrnar?

Þetta kom fyrir hjá mér um daginn, ég leitaði um alla veggi, þreifaði fyrir mér allsstaðar, en dyrnar voru horfnar, sömuleiðis ljósarofinn. Þetta var alveg fáránlegt, og þar sem ég er alveg ótrúlega myrkfælin þá brotnaði ég saman og grét af hræðslu, því ég komst ekkert út!! er þetta bara eitthvað sem ég lenti í eða er þetta algengt fyrirbæri?