Hann var þannig að ég var að halda upp á afmælið mitt og ég og aníta og sjöfn (sem voru í draumnum bestu vinkonurnar mínar en þær eru það ekki í ekta) við fórum niður í skólann minn sem var eginlega í bænum (s.s RVK) við vorum að gera eitthvað sem ég man ekki eftir en klukkan varð allt í einu um 11 eða tólf og 18 ára ball var að byrja á einum staðnum í skólanum(þessi staður er til í martröðunum mínum líka). Mig langaði að fara en ég sagði við stelpurnar :hey! það halda allir að ég sé 11 ára svo hvernig ætti ég að komast inn! (ég er 15 ára)En þá kom strákur og tók um mittið á mér og labbaði inn.. stelpurnar komu svo á eftir.. það var þvílík rokk tónlist þarna.. og hann labbaði með mér hringinn í kringum salinn (það voru stólar í miðjunni) og svo stoppaði hann og kyssti mig.g sagði mér hvað honum hafði fundist ég vera sæt og að honum hafði langað svo mikið að kyssa mig svo að hann manaði sig bara upp í það svo fór ég heim og labbaði bara venjulegu leiðina heim og þar var mamma og sagði mér að klukkan væri 3 um nótt og ég bara ha? og fór svo heim.. þar beið okkar stelpnanna matrix gaur (smith) og var að yfirheyra okkur með einhverju tæki sem hann lýsti í augun okkar og sá þá allt sem hafði gerst um kvöldið…´herbergið var allt hvítt og það var eins og veggirnir væru flatar ljóaperur. ég fór fram og sá þá í annað herbergi og fór inn í það vegna þess að ég þekkti manneskjuna sem var inn í því.. þegar ég kom inn í herbergið byrjaði mamma þessars stráks (sem var í herberginu) að öskra á mig hvað ég væri mikil hóra og væri að taka litla strákinn sinn frá sér.. það hafði líka verði búið að yfirheira strákinn og hann lenti illa út úr því og var í panic kasti.. ég var svo þreytt þannig að ég fór að sofa en fékk martröð.. ég sá eitthvað andlit og eitthvað annað þannig að mér brá og ég vaknaði (í draumnum) svo að ég fór fram.. og sá strákin enn vera í panic kasti og þess vegna horfði ég út um gluggan og það var svarta myrkur úti og ég sá þá martröðina í glugganum og brá svo að ég vaknaði í ekta..

Mér dreymdi hann fyir nokkrum dögum en get ekki gleymt honum…
Ég reyndi að finna hvað hann þýddi en það voru svo mikið af mótsögnum að ég bara vissi ekkert hvað hann þýddi…