mig dreymdi mjög skrítinn draum um daginn sem kom dýrum við. það byrjaði þannig að ég var í matarboði með ættingjum úti á gangstétt. allt í einu kom stærðarinnar geitungur fyrir framan nefið á mér og hann vildi ekki fara í burtu. ég vaknaði æpandi og reyndi síðan aftur að sofna. þá dreymdi mig að ég væri að labba í fjöru með pabba mínum, bróður og systur og allt í einu sá ég eitthvað skrítið í fjarska. þegar ég labbaði nær voru helling af hestum sem voru lifandi en lágu í sjónum og þeim rak upp í fjöruna eins og þeir hefðu lent í miklu óveðri úti á sjó. þeir voru þreyttir og máttlausir og allir lágu þeir í fjörunni og líka út um allt í sjónum nálægt sandinum. þetta voru margir margir hestar. eftir gönguna í fjörunni fór ég í dýrabúð og þar var búr með tveim hundum, naggrís, gufli og fleirum dýrum. það sem var óhugnarlegt við það var að dýrin voru öll kramin í búrinu og gátu ekki hreyft sig. ég kvartaði við eigandann en honum stóð á sama. eftir þetta fór ég heim til mín oh húsið hafði breyst og líka umhverfið í kring. húsið var miklu stærra með mörgum álmum og risastórum rauðum sófa og helling af ljósum.
daginn þar áður hafði mig líka dreymt skrítinn draum. ég var sem sagt með pabba mínum og systur og við ætluðum til london í 2 daga. þegar við loks komum til london eftir seinkun á flugi og erfiðan dag fórum við á bílaleigu og leigðum bíl. við keyrðum um borgina og fórum að big ben. verið var að hækka big ben en það sem var fáránlegt við það að það var ekki byggt ofan á heldur var byrjað að byggja á fyrstu hæð og allri byggingunni síðan lyft hærra upp með einhverjum rosa krana. fórum við nú inn í bygginguna og þar var pizzastaður sem heitir little sesars. við ætluðum að fá okkur pizzu en þá var bara hægt að fá pizzu með hálfum appelsínum og appelsínuberki þannig að við hættum við pizzuna. aff því við vildum ekki pizzuna þá var staðnum lokað. eftir þetta þá lét pabbi minn ættleiða mig hjá leiðinlegu fólki og ég fékk náttúrulega sjokk en lét mig hafa það. þetta var ljótt hús og ég fékk fisk í matinn. þegar stjúpforeldrar mínir höfðu sofnað þá ætlaði ég að strjúka og fór út á svalir, fór í gegnum annað herbergi sem var nákvæmlega eins og höll með snobbi og öllu. þetta var einhverskonar leiniherbergi með dagsbirtu. úr þessu herbergi fór ég í annað herbergi hærra uppi með ennþá flottari hlutum og bara nákvæmlega eins og höll með málverkum í loftinu, þjónum og öllu, man eftir að hafa talað við gamla konu eða kall. skindilega langaði mig ekki að strjúka og fór í herbergi foreldra minna og burstaði tennurnar mínar með þeirra tannbursta.
getur einhver sagt mér hvað þessir draumar þíða ? ég hafði ekki hugsað neitt út í þetta síðustu daga og þetta kom mér á óvart