Ok

Eina nótt dreymdi mig að ég færi í heimsókn til frænda míns
hann var nýkominn frá útlöndum! Keypti alveg helling af DVD
myndum. Nutty professor 3 the ???(eitthvað fáranlegt nafn)
hún var ekki með Eddie murphy. Svo keypti hann líka einnhverja
mynd eins og Romper stomper eða American history X.
Svo allt í einu er ég staddur í einhverri fjallshlíð í nasistabúningi. Fjallshlíðin var eins og risastórar tröppur.
fyrir neðan mig í hlíðinni voru tveir aðrir strákar í nasistabúningum. Ég ætlaði að fara eitthvað ofar í hlíðina og þá byrjuðu þeir að hrópa svikari. Og ætluðu að elta mig.
Ég klifraði ofar og einn elti mig ég spyrnti í hann og hann féll niður og drapst. síðan kom hinn gaurinn og ég fór neðar í hlíðina vi slógumst eitthvað og ég spyrnti honum af mér og hann drapst líka.
Allt í einu er ég kominn í einhvern fjallakofa og er í gráum nasistabúningi og lít mikið eldri út með grátt hár og svona.
Allt í einu kemur einhver og fellir mig. Ég stend upp og allt í einu gengur Hitler að mér. Hann segir eitthvað eins og “This is not unterricth” og ég segi “No this is not” svo byrja allir að dansa einhvern sveitadans svona krækja saman höndunum.
Svo er draumurinn búinn!

Hvað í fjandanum gæti þetta þýtt?