Fyrir rúmlega mánuði síðan þá hætti ég með kærastanum mínum og var auðvitað mjög sár yfir því, enda fékk ég aldrei skýringar á því afhverju þetta gerðist. Þannig að við vinkonurnar ákv að fara í andaglas til að ath hvort andinn gæti sagt mér e-ð. Andinn kom strax í glasið og ég fór að spyrja hann, en hann vildi ekkert segja mér annað en það að gaurinn myndi hafa samb við mig eftir 3… ok það gat verið klukkust, dagar, vikur osfrv.
Nákvæmlega þremur vikum eftir dreymir mig að ég og hann séum saman á rúntinum og hann er að reyna að fá mig til að koma aftur til sín, en ég vildi það ekki.. Daginn eftir drauminn þá hefur hann samb við mig, segist reyndar vera kominn með aðra kærustu en vilji samt hitta mig… Svona gekk þetta í eina og hálfa viku og ég neitaði alltaf, þá dreymdi mig að við værum saman nema hvað að hann vildi mig ekki lengur og var leiðinlegur við mig.. og daginn eftir hringir hann í mig og bað mig um að gleyma þessari vitleysu í sér hann vildi ekki skemma sambandið með hinni…
Er enn að velta fyrir mér hvort draumarnir hafi verið fyrirboðar eða hvað, mig dreymir stundum hluti sem ég get tengt við það sem gerist svo í lifinu en aldrei svona augljóst.. auk þess hefur mig aldrei dreymt hann nema í þessi tvö skipti, ekki einu sinni þegar við vorum saman..
Og að lokum þá mæli ég ekki með því að fólk sé að fikta mikið í andaglasi nema það hafi kynnt sér allar hliðar málsins fyrst og kunni að kalla fram verndara og svona, sjálfar notum við alltaf quija borð það hefur reynst best.
kv MiaM