Sælt veri fólkið.
Undan farnar nætur hefur mig dreymt allveg hræðilega. Það er búið að gerast 6 sinnum í röð að mér líður bara bókstaflega illa og langar helst ekkert til að fara aða sofa. En mig langar að segja frá því helsta sem ég man eftir og var að pæla hvort þið gætuð svona reynt að segja mér hvað þetta þýðir..
Plz engin skítköst og eitthvað um að þetta sé bara bull shit.

Ok. Hérna kemur einn sem mig dreymdi bara núna síðustu nótt:

Ég var úti að labba með bestu vinkonu minni og við vorum eitthvað að fíflast eins og vanalega. Svo erum við að ganga í gengum eitthvað braggahverfi þega svartur bíll kemur þjótandi úr einu skotinu og keyrir í veg fyrir okkur. Við verðum skíthræddar og hlaupu til baka. En það er svo óþægilegt að það er eins og það væri mjög sterkur mótvindur svo við hrösuðum í gríð og erg. En einhvernveginn komst okkur að komast heim. Svo greinlega nokkrum dögum eftir vorum við aftur að labba þarna þegar sami bíllinn kemur og núna tekkst fólkinu sem keyrir hann að drösla vinkonnu minni upp í bílinn. Ég öskra auðvitað eins og brjálæðingur og hleyp til baka og bílinn á eftir mér. En mér tekkst þó að hlaupa í gengum dimmt húsasund þar sem hann kemst ekki. Þegar ég kem heim og segi hvað gerðist verða allir brjálaðir út í mig um að hafa ekki verið varkárari. Þegar hún finnst ekki verður úrskurðað í blaðinu að hún sé dáin og allir verða svakalega leiðir og aftur verður mér kennt um.
Ég rýk út í fýlu útaf þessu og labba niður í bæ. Þegar ég er komin þangað sé ég vinkonu mína sitjandi á bekk ég þekki hana úr km. fjarlægð. Ég kalla á hana en hún virðist ekki taka eftir því svo ég kalla aftur. Þá lokksins sér hún mig og gengur til mín. Ég er svo ánægð að sjá hana lifandi að ég tárast, þegar hún er komin allveg að mér hvæsir hún: Helvítis tíkin þín. Af hverju reyndiru ekki að stoppa þá?
Svo hvarf hún!

Mér leið svakalega illa yfir þessu þegar ég vaknaði! :|

Svo langar mig að segja fra einum öðrum.

En þannig var það að eg var stödd inni í drungalegu herbergi ásmmt fullt af fólk.
Reynar lá ég í einhverju rúmi eða kistu en allir aðrir í kringum mig grátandi.
Þar sem ég er svo mikill grínisti í mér byrjaði ég auðvitað að bulla einherja vitleysu en enginn fyrstist heyra í mér. Allir sátu þarna bara grátandi og gláptu á mig. Mér var nú ekki farið að lítast á blikuna þegar 4 menn komu og lyftu rúminu/kistunni sem ég lá í og gengu með mig út og allt fólkið á eftir… svo byrjuðu þeir að láta mig síga ofan í djúpa holu. Nú var ég byrjuð að fatta hvað var að gerast og mér leist illa á það.
Ég byrjaði að öskra og æpa að eg væri ekki dauð og ætlaði að fara að lemja á kistulokið þegar ég fattaði að ég gat ekki hreyft mig. So var mokaði yfir mig og allt varð svart.

Okey vill einhver plís reyna að segja mér hvað þetta þýðir!
And let me tell you, she is not the brightest bulb in the tanning bed!