Halló, Mig langaði til að segja frá draumi sem mig dreymdi fyrir ca 2árum. Ég ætla samt að taka það fram að ég veit ekki hvort ég var vakandi eða sofandi. við höfum öll lent í því að vita ekki hvot við vorum vakandi eða sofandi þegar einhver rosa draumur á sér stað, þannig að þið vitið hvað ég meina….
En svo ég geti byrjað…..Ég lá í rúminu mín “sofandi” þegar alltí einu kom eihver stór og sterk vera fyrir aftan mig og ætlaði að hrifsa mig í burtu, ég sá þessa veru aldrei en ég skynjaði hana vel, Hún setti aðra höndina undir lappirnar á mér, en tókst ekki betur en svo að höndin fór á milli lappana á mér og hin höndin fór um hálsin á mér, rétt eins og maður ætlar að bera einhvern. Þegar höndin fer um hálsinn á mér finst ég, mér vakna og þegar ég vakna ætla ég að snúa höfðinu við til að sjá hvað væri í gangi. Þegar ég byrja að snúa höfðinu, hættir veran skindilega við að taka mig upp og grípur í staðinn fyrir andlitið á mér og treður andlitinu á mér í koddan, ég berst um eins og ég get og finn eins og það sé putti við munvikið má mér og um leið bít ég af öllu afli, það leið ekki sekond að veran var farin, en ég lá en á hliðina með andlitið í koddanum og hjartað á fullu og enþá með tilfiningu í munninum að ég beit í eitthvað. Það tók mig dágóða stund að ég þorði að snúa mér við til að kíkja í kringum mig…….Ég ætla að bæta einu við, að mánuði seinna var ég kominn út á sjó (var í frí túr) og var liggjandi í kojunni, þegar ég hrekk upp við það, að það er gripið um lappirnar á mér og líka um heldurnar. Ég sprikklaði eins og ég ætti lífið að leysa, en þessar verur voru snöggar að sleppa og láta sig hverfa. Ég fann það að þessar verur voru ekki nærri því eins sterkar og sú fyrri. Þessir tveir atburðir gerðust með mánaðar milli bili fyrir um 2 árum, ekkert hefur gerst síðan þá. Síðan þá hef ég verið að velta því fyrir mér, hvað þetta var og afhverrju þetta gerðist. eina sem ég gat tengt við þetta, var, að stuttu seinna þá lenti ég í köfunar slysi og var nærri druknaður, ég veit ekki hvort þetta tengist því…..hvað myndu þið halda???? hafið þið heyrt eitthvað svipuðu þessu áður? ef svo er látið mig endilega vita….

KV