Mig dreymdi hérna eina nóttina mjög furðulegan draum.
Hann gekk að mestu út á það að ég væri að halda fólki jafnvægi í hendi mér.
Það vorum u.þ.b 5 persónur sem stóðu í hendi minni og ég var halda þeim jafnvægi.
Svo var alltaf eins og fólkið væri að missa jafnvægið þá hreyfði ég heldina og hélt þeim uppi, s.s í hendinni.
En svo kom að því að ein persónan var alveg að fara að detta, ég var að missa hana úr lúkunni en náði að koma á hana réttu jafnvægi með því að hreyfa hendina. En akkúrat þá verð ég svo hrædd í draumnum um að manneskjan væri að detta, að ég vakna upp í einum hvelli og mér finnst eins og ég hafi verið kýld í hjartað. Mér var svo órótt og þetta tók svo á.

Merkir þetta eitthvað?