Gæti einhver sagt mér hvað rottur í draumun þýða. Mig dreymdi í nótt nokkrum sinnum að sjá rottur í í kringum mig og eða í hornum og þótti mér og þeim sem voru með mér þær mjög ógeðslegar og fylltumst miklum ógeði. Þær voru reyndar frekar loðnar og með skott svipuð og á íkornum. Oftar en einu sinni fékk ég rottu utan á mig og fríkað þá algjörlega út og hristi þær af mér. Mig minnir að þetta hafi gerst tvisvar en ég man það ekki fyrir víst. Ég fór eins fljótt og þvoði mér um hendurnar í draumnum eftir að hafa komin í snertingu við rottur. Ég man eftir því að tveir bræður mínur voru eitthvað í kringum mig í eitthvert skiptið. Snerti annar þeirra eitthavð sem var skítugt af rottu sem ég hafði verið með og sagði ég honum að hann þyrfti að þvo sér líka.

Getur einhver sagt mér hvað rottur geta þýtt í þessu samhengi?

með fyrirfram þökk.