Það er varla að ég þori að byrja þessa umræðu. Ég er enn að
jafna mig eftir þá staðreynd að Ísland sé land Guðs
samkvæmt bresku píramídastofnuninni. En, here goes…

Í gær miðlaði vinur vor Þórhallur á Stöð tvö. Hann fann fyrir
þeim Nonna (Jóni væntanlega) og Önnu. Hann áttaði sig á vþí
að blessuð glaðlega og feita konan laumaðist of mikið í
nammi og að einhver kona ætti einhver tengsl upp í
Borgarfjörð (þar sem hálf þjóðin á ýmist ættingja eða
sumarbústaði, og hinn helmingurinn leigir sumarbústaði).

Þegar hann vildi klína konuskömminni á ákveðnar götur í Rvk,
passaði það ekki en vinkonan vann við aðra götuna (sem er
nú ekki beint stysta gatan í Rvk).

Þá kom kerlingin með spilin en úr henni vall lítið annað en
froða.

- - -

Ég bíð ykkur hér með að spá fyrir ykkur, ókeypis fyrst en svo fer
ég að rukka. Ég þarf bara helstu uppl. Nickname, aldur og kyn
og sjáið svo: ég er jafn skyggn og Þórhallur.

PS ef .þið ljúgið til um nick, aldur eða kyn, þá er ekkert að
marka spádóminn vegna árugruggs.

Hver býður sig fram?