Allir eiga sér tvífara og ég var svo heppin að finna minn og ég er bara 14 ára! sumir finna sinn aldrei og ég veit ekki um marga sem að finna sinn…

Vínkona mín var alltaf að benda mér á að ein stelpa í Hagaskóla væri alveg geðveikt lík mér og svo þegar ég var að leita af myndum á frostaskjol.is þá rakst ég á mynd af þessari stelpu og ég hélt í alvurinni að þetta væri ég! Ég reddaði mér msninu hennar og við fórum eitthvað að tala saman og ég sendi henni mynd af mér og hún hélt að þetta væri hún!!!

Svo var pabbi eitthvað að skoða í tölvunni og sá þessa mynd af henni og hann hélt líka að þetta væri ég og ég var að reyna að segja honum að þetta væri ekki ég en hann vildi ekki trúa því! Það sama gerðist hjá henni nema það var mamma hennar!

Svo fórum við að tala saman þá komumst við að því að við höfum sömu áhugumál og svoleiðis….

þetta er pínu scary og ég var að velta því fyrir mér hvort að þetta sé satt með að allir eiga sér tvífara og eruð þið búin að finna ykkar?

kveðja
eminemfaninn