Halló!

Ég er með eina skemmtilega spurningu, er hættulegt að fara í andaglas? Virkar það? Ég er í framhaldsskólanum á Laugum og þar er búið að banna að fara í andaglas á vistunum því það er talið vera svo reimt þar.. En okkur langar það rosalega.. Hvað ráðleggið þið?

Og eitt enn, það má fjalla um drauma hér er það ekki?
Mig dreymdi rosalega skrýtinn draum um daginn og langar soldið að segja frá honum.
Hann var þannig að ég, mamma mín og stóri bróðir minn vorum öll að fara á ball, en í sitthvoru lagi. Fyrir ballið fór ég heim til vinkonu minnar og við vorum að hafa okkur til fyrir ballið. Þar fór ég inn í eittherbergi sem var ein risastór og mjög mjög djúp sundlaug og ég var alltaf að passa mig að fara ekki með andlitið oní vatnið til að eyðileggja ekki hárgreiðsluna og förðunina.
Svo þegar á ballið var komið þá gerðist það skrýtnasta. Bróðir minn var að lúberja mömmu mína og það var hræðilegt. Svo fór hann að reyna við mig og vildi fá að sofa hjá mér og það sem var skrýtið að hann var ekki mjög drukkin. En svo man ég ekki meir! Þetta er örugglega einn sá óhuggulegasti draumur sem mig hefur dreymt.. Endilega svarið!