Það er alltaf að koma fyrir mig að þegar ég er að hugsa útí eitthvað, þá gerist það. T.d. fyrir stuttu, þá hugsaði ég með mér: “Ætli pabbi fari einhvern tímann inná spítala aftur útaf hjartanu?” Pabbi minn er mjög hjartaveikur sama með mig og systur mína, en bróðir minn slapp. Og hann var lagður inn þegar ég var yngri inná sjúkrahús vegna þess að hann fékk svo heiftarlegar hjartatruflanir. Og ég hugsaði um þetta núna fyrir stuttu, og núna liggur pabbi minn inná spítala útaf þessu sama =(
Ég er alltaf að hugsa um eitthvað, og svo stuttu seinna þá gerist það. Ég er bara að pæla að taka af mér hausinn eða eitthvað.