Sælir hugarar.
Ég er að vonast til þess að það sé einhver þarna úti sem les þessa grein og ráði hana fyrir mig. Því að ég er alveg óhæfur til þess.

Ok, mig semsagt dreymir aðalega 2 drauma, og mig dreymir þá aftur og aftur með óreglulegu millibili.
Fyrsti draumurinn er þannig að ég labba inní liftu sem lítur út fyrir að vera lifta í mjög háu húsi t.d Empire state í bandaríkjunum. Þetta er flott lifta, nýleg með svona digital rauðum skjá til þess að sína á hvaða hæð maður er staddur, og takkarnir eru níutíuogníu (99). Ég er einn í liftunni og hún er frekar lítil, svipuð og fangaklefi kannski 6-8 manna lifta. Ég íti á einhvern random takka, t.d 15 og liftan fer upp, en hún fer ekki á hæð 15, hún fer bara einhvert! hún fer upp og niður á fullu í hæð 300 og hæð -50, bara eithvað rugl og þannig heldur það áfram alveg á fullu, hún stoppar stundum og þá reyni ég að opna hurðina en það tekst ekki, svo hoppa ég og er eithvað að reyna að koma henni af stað, og þá fer hún aftur af stað.

það er einsog þessi draumur sé í marga klukkutíma, en ég las einhverstaðar að manni dreymi bara í einhver mjög stuttan tíma, man ekki hvað lengi.
Þessi draumur er mjög óþægilegur og mig hefur dreymt hann í nokkur ár, það væri stórglæsilegt ef einhver botnar eithvað í þessu.

Seinni draumurinn.

Seinni draumurinn er einnig mjög skrítin en hann virðist aðeins vara í mínútu eða svo, hann er semsagt þannig að einhver er að lemja vin minn, ég sé andlitið á honum aðeins sem andlitslitaða móðu svona einsog í sjónvarpinu þegar það er verið að fela andlitið á einhverjum, og ég reyni að kíla hann en ég get það ekki, ég hef fullkomið færi til þess en einhvernvegin begir höndin á mér alltaf frá og ég sé allt í slow motion en heyri sammt mjög skírt í röddinni á föður mínum segjandi orð við mig einsog “aumingi þú hittir ekki” og eithvað álíka en hún heyrist á venjulegum hraða.
Svo heldur þetta áfram í svona mínútu og svo endar draumurinn.
Mér finnst alltaf mjög svekkjandi að hitta ekki manninn þar sem að ég hef æft 3 bardagaíþróttir og kann alveg að hitta mann í andlitið, og vinn í starfi þar sem að ég þarf að díla við alkahólista, dópista og fólk með stæla.

Með fyrirfram þökk til allra sem geta svarað þessu.

Kveðja, G.