Mig dreymdi þennan líka fáránlega draum í nótt. Hann var þannig að ein augntönnin úr mér var dottin úr, ég veit ekki alveg af hverju hún datt, en það var farin að vaxa önnur lítil tönn undir. Ég fór semsagt til tannlæknis og þar var mér sagt að ég væri með mjög sjaldgæfan sjúkdóm og að ég myndi missa allar tennurnar fyrir 25 ára aldur! Það var engin lækning til við þessu sögðu þeir. Ég var náttúrulega miður mín… Svo dreymdi mig líka annan draum sem var þannig að ég var stödd í stórmarkaði og var hálfnakin. Mig dreymir oft að ég sé stödd bara úti á götu eða eitthvað álíka og er kannski bara í bol og veit ekki af hverju ég er svona léttklædd. Getur einhver séð sér fært að finna ráðningar við þessum herlegheitum?!