Mig dreymdi að ég og stjúpi minn vorum í björgunarbát á stóru skipi lengst útá sjó og við vorum að leika okkur að velta honum við og detta í sjóinn. En það var ekkert mál að laga bátinn og fara aftu um borð. Við fórum svo inn í skipið sem var þá orðið íbúðin sem ég á heima í og ég var orðinn ólétt svo nokkrum mínotum seinna var ég búin að eiga, bara heima í stofu ekkert mál, barnið var svart því pabbinn var svartur ég mundi samt ekkert eftir honum. Og augun í barninu voru skærblá en þegar ég horfði í smá tíma á þau byrjuðu þau að breytast í brún og urðu að lokum dökkbrún. Ég lagði svo barnið frá mér í vöggu og fór út meðan stjúpi var að passa, ég stóð útá strætóskíli þegar ég fattaði að fylgjan var ekki enn komin út og spurði mömmu, sem var með mér, hvort það væri kannski sniðugt að ég færi bara heim og mundi sleppa því að fara í skólann daginn eftir. Ég ákvað það svo, þegar ég var svo kominn heim hringdi ég í kærastann minn og sagði honum að ég væri búin að eiga barn, en hann hafði ekki hugmynd um að ég væri ólétt, þetta gerðist eitthvað svo snöggt. Svo voru nokkrir dagar liðnir og barnið var byrjað að labba og var orðið ágætlega stórt bara eftir nokkra daga. Svo vaknaði ég.<BR