Mig dreymir oft ákveðna manneskju, sem mér þykir mjög vænt um en ég hef ekki séð í svolítinn tíma. Sko þangað til fyrir svona þrem vikum hitti ég hana á hverjum degi en ég hef ekki hitt hana lengi. Þetta var mjög svipað síðasta sumar, þá dreymdi mig aðra konu sem ég var líka vön að sjá á hverjum degi og þótti mjög vænt um. Báðar þessar konur hafa verið mér mjög hjálplegar í erfiðleikum sem ég hef glímt við og mér þykir mjög vænt um þær báðar.
Mig dreymir aðra þeirra næstum á hverri nóttu núna og hina dreymdi mig næstum á hverri nóttu síðasta sumar.
Mér finnst undarlegt hvað mig dreymir sömu manneskjuna oft og var að spá í hvort það hefði einhverja sérstaka þýðingu.
Takk takk

Sunnefa <br><br>Kveðja
Sunnefa
P.S. Harry Potter er bestu
Kveðja
Sunnefa Black