Síðastliðna nótt dreymdi mig að ég og maður frænku minnar ásamt fleiri aðilum (sem ég man ekki hverjir eru) vorum með hálfgerðann miðilsfund.

Í draumnum lá ég fyrir og fanst mér eins og að ég væri miðillinn en maður frænku minnar, sem er tæknimaður á útvarpi, var með eitthvað mælitæki (leit út eins og lygamælir eða jarðskjálftamælir með nálum sem sveiflast til) og lista sem hann fór yfir þegar mælarnir gerðu eitthvað en mitt hlutverk var að láta þá vita þegar ég fann fyrir einhverjum hræringum í kringum mig.

Þar sem ég lá þarna var ég alltaf annað slagið að opna augun og fylgjast með því þegar hann fylgdist með mælunum og skrifa athugasemdir eftir þeim. Á einni síðunni stóð eitthvað og svo tölustafir fyrir aftan. eins og “Jákvæð orka 2894 mhz - Neikvæð orka 8374mhz - framliðinn einstaklingur 1843 mhz” o.sfrv. (ath. tölurnar eru skáldaðar því ég man ekki þær réttu)

Þegar ég hafði legið þarna í smástund þá fanst mér eins og eitthvað hefði komið inn, eitthvað afl eða orka en ég sagði ekki neitt heldur opnaði augun og leit á blaðið hjá manni frænku minnar en þá hafði hann tekið eftir breytingum á mælitækjunum og strikaði með pennanum undir “Afturganga”. En þá gerðist það. Ég gat ekki lengur hreyft líkaman nema bara opnað og lokað augun en í hvert skiptið sem ég opnaði augun þá var maður frænku minnar það eina sem ég sá þar sem hann stóð og blaðið sem hann notaði til að fara yfir með mælunum var vafinn utan um hausinn á honum og hann var alveg stirður og fanst mér eins og að hann væri andsetinn. Einhverra hluta vegna þá voru hinir horfnir úr herberginu og ég sá þann kost vænstann að fara með bænirnar aftur og aftur og ég vaknaði við það að ég var að halda áfram með bænirnar kófsveittur og mér fannst eins og að þessi vera væri enþá í herberginu mínu svo að ég hélt áfram með bænirnar. Þetta var svo raunverulegt að ég var skithræddur og vildi varla vera einn í herberginu. Ég er tuttugu og eins árs gamall og og er ekki vanur að vera með svona aumingjaskap.

Það hefur oft komið fyrir mig að einhver hljóð í vöku hafi áhrif á draumana mína eins og t.d. vekjaraklukkan hringi í vöku en þá hringir sími í draumnum og þess háttar.

Hafi einhver eitthvað segja um þennann draum þá endilega lát heyra!