Í nótt dreymdi mig að ég væri úti þegar geitungur kæmi fljúgandi að mér. Mér var alveg sama en svo fór hann að fara í taugarnar á mér þannig að mér fannst sniðugt að láta hann bara stinga mig því þá myndi hann deyja og fara. Það fór svo loksnins þannig að hann stakk mig, en hann dó ekki heldur hélt áfram að stinga mig, bæði í andlitið og á hendurnar. Svo var eins og að hann fengi nó og flaug burt. Ég sat eftir öll rauð og aum.

getur þetta þýtt eitthvað og ef svo er hvað???