Nokkrir af mínum draumum:

Ég er að skylmast við einhvern gaur sem ætlar sér að drepa mig upp á svaka háu bjargi og hann hrindir mér fram af.

óvinir mínir(þegar ég var lítill en eru það ekki lengur) eru að reyna ná mér og ætla að drepa mig með svokallaðri pressu sinni, ég sá þá drepa einn krakka þannig, settu hann í pressuna og ýttu af öllum kröftum og blóðið spýtist úr æðum hans í allar áttir. ég reyni að fara heim og fá hjálp en enginn er heima, ég virðist algerlega vera aleinn að reyna að flýja hörmulegan dauðdaga. Ég sé þá á hæðinni fyrir ofan mig vera spyrja hvar ég sé, ég hleyp til vinar míns sem er heima en vill ekki hleypa mér inn. og ég vakna.

Síðan einn þannig að einhver brýst inn til mín og ég hleyp fram á svalir, er að spá í hvort að þetta sé draumur, ég prófa að kýla fast í magann á mér og tek eftir að ég finn ekki eins til og ég átti að gera, þá stekk ég fram af svölum og svíf eins og fuglinn fljúgandi,ég hrapa og hrapa og í miðju fluginu vakna ég.

Ég skrópa í skólanum, er á go-kart sem er þótt að undarlegt sé gerist, fyrir ofan skólann minn sem er í miðbænum, þar er ekkert nema mold sem vanalega er Ráðhúsið. Vinn eitthvert verkefni fyrir einhvern karl og hann gefur mér að launum PS2 og mér til mikillar hörmungar vakna ég.

Ég er að labba á einhverjum stað sem ég kem ekki fyrir mig en man bara að frændi minn býr rétt hjá, ég labba og sé Lifandi rúm sem eltir mig upp að húsi frænda míns þar sem ég fer upp á þakið, en þar er Górilla sem hrindir mér framaf og ég vakna.

Síðan dreymdi mig nákvæmlega sama draum einhvern tímann sem ég sofnaði um morgunin þegar ég átti að fara í skólann, ég gerði mig grein fyrir að ég var í draumalandinu og draumurinn varð styttri er ég sagði upphátt“Þetta er bara draumur!!” Þegar ég vaknaði var ég orðin of seinn í skólann.


Það hefur oft komið fyrir mig að mig hefur dreymd sama drauminn oftar en einu sinni.
Suma hefur mig dreymd 3-4 sinnum.
Hefur það komið fyrir ykkur?<br><br>Your suffering will be legendary, even in HELL.

Those who will not apply will be terminated.

!!!Það er ekki HÆGT að búa til hamborgarapylsu!!!

You're all gonna die down here!!

Sveppi feiti velti sér uppúr hveiti.
————–