Sko ég hef enga svona næmni en það hefur mamma mín og ég er þakklát fyrir að hafa hana ekki sjálf.
Mamma mín sem er þó nokkuð næm, lenti í hrikalegri lífsreynslu þegar hún var lítil það var nefnilega þannig að hún bjó í tvíbýli og fyrir neðan bjó kona með tvo litla drengi og mamma mín passaði þá, en það sem skeði var það að það kveiknaði í húsinu þeir og öll fjölskyldan hennar mömmu bjargaðist en konan á neðri hæðinni fannst látin með annan drengin í fanginu og hinn var dáin rétt fyrir aftan, þau dóu úr reykeitrun öll þrjú og það var nátturulega áfall fyrir mömmu og þannig en svo var búið að gera upp húsið og fjölskylda mömmu aftur flutt inn skeði það um nóttu að mamma vaknar og fer á klósettið og þegar hún kemur fram af því og er að labba inn í herbergið sitt er henni litið inn í forstofuna og kemur þá ekki konan hlaupandi með annan soninn í fanginu og mömmu finnst eins og konan sé að rífa í hana og konan segir við mömmu komdu fyrir mig getur passað þá ég er að vera of sein komdu komdu (þetta er ekki orðrétt en svona nokkuð líkt en þetta er sko konan sem er dáin) mamma mín varð svo hrædd að hún hljóp inn í herbergið sitt og vefur sig inn í sængina sína svo vel að varla er hægt að losa hana og það þurfti að skera sængina utan af henni.
Mér finnst þetta bara ógeðslegt og ef ég myndi lenda í svona lífsreynslu er ég ekki viss um að myndi lifa af…….ég veit að fólk á örugglega erfitt með að trúa þessu en mamma er næm og hún finnur fyrir hlutum en ég get sagt ykkur það að hún fór aldrei inn í þetta hús aftur hún flutti til ömmu sinnar.
þá er þetta á enda og ég þakka fyrir mig :)