Eg vaknaði upp við að íbúðin var full af reyk af því
það var hús á strandgötunni að brenna. Mig var að dreyma að
heimsendir væri að koma. Fjölskyldan mín spurði mig hvort ég
ætlaði ekki örugglega að kjósa og kjósa rétt. Eg sagði jú af því mér fannst vera kosningar á næsta leiti. Svo sá ég brennandi hús og föður hoppa niður af þriðju hæð með svona 2. ára barn. þeir
héldust í hendur alla leiðina niður. Eg fór í kirkju og sá þar frænku mína og frænda. Hún var ólétt í draumnum og þegar ég sagði þeim að ég vildi ekki deyja svona þá sögðu þau: hvaðheldurðu að við höfum meint með að spurja þig hvort þú ætlaðir ekki að kjósa rétt!?!
Eg spurði hvort það væri leyfilegt að fara með því að taka overdose eða skera sig á púls og þau sögðu bara já. Þetta er þitt val…þú getur gert þetta sjálf eða látið einhvern annan gera þetta.

Eg hafði á tilfinningunni eins og eitthvað hræðilegt væri að koma.
Eg fór inní kirkju og sá fullt af fólki, skíthrætt og grátandi og ég grét líka því ég var jafn hrædd og það. Eg heyrði prestinn segja að drykkjarvatn í flöskum á Spáni hefði verið eitrað og fullt af fólki dáið kvalafullum dauðdaga þessvegna.
Eg settist á bekk með 2
öðrum konum, önnur þeirra var líka ólétt, ég grét með þeim. Eg
vildi tala við prestinn því ég vildi að það væri réttlætanlegt að drepa sig og ég færi ekki til helvítis heldur væri ég að kjósa rétt.
Svo vaknaði ég. Þetta var svo mikill viðbjóður að dreyma þetta og ég veit ekki hvort ég er bara paranoid en ég er orðin hrædd núna. Veit einhver hvað þetta gæti þýtt?<br><br>Aðgát skal höfð í nærveru sálar.
Aðgát skal höfð í nærveru sálar.