Ég man þegar ég var lítill og átti oft á tíðum til að dreyma martraðir og aðrar sýrur sem enduðu þannig að ég dó.
En ég fór allt í einu að geta stjórnað draumum mínum þannig, að þegar ég gat séð að mig var að dreyma, þá gat ég vaknað. Ég var bara nógu ákveðinn, reyndi að lifta augnabrúrnum þar til ég vaknaði, það virkaði alveg þangað til að draumurinn sneri á mig. Eitt sinn er ég var að reyna vakna úr draumi, reyndi að lifta augnabrúrnum. Ég hélt að ég væri vaknaður, þegar ég sá að ég var kominn í allt annað umhverfi. En þegar ég áttaði mig, þegar eldurinn byrjaði að tala eða eitthvað svipað, gerði nákvæmlega það sama, mjög ákveðinn, reyndi að lifta augnabrúrnum, gerðist það aftur að ég hafði flogið inn í allt annað umhverfi, sem var allt öðruvísi en hið fyrra. En þegar ég sá að ég var ennþá í draumi áttaði ég mig að ég hefði tapað þessum hæfileika mínum. Og eftir það vaknaði ég, ennþá dag líka í dag venjulega.
————–