Hæhæ,það er þannig að mig er búið að dreyma soldið oft í röð eina ákveðna manneskju,strax í fyrsta draumnum var andlitið á henni mjög greinilegt svo að maður mundi alveg eftir því.
Síðan fyrir svolitlu síðan var ég að róta inni í skáp og þá pompaði mynd af þessari manneskju upp í hendurnar á mér.Og ég get svo svarið að ég hafði aldrei séð þessa mynd áður,ég gat heldur ekki séð hann á neinni annarri mynd,bara til þessi eina mynd af honum.
En þessir draumar eru stundum bara geðveikar martraðir og maður vaknar skjálfandi og svol,og stundum bara góðir draumar.Þetta er farið að fara verulega í taugarnar mér,er bara að pæla hvort að þetta gæti þýtt eitthvað?