Mig er alltaf að dreyma dauða kettlinga! I þetta skiptið dreymdi mig að ég þyrfti sjálf að ákveða hver af kettlingunum mínum yrði drepinn og mig dreymdi annan draum sama dag um að ég dræpi þá sjálf. Eg á 4 kettlinga og þetta voru kettlingarnir sem ég var að drepa í draumnum. Aður hefur mig dreymt að dauða kettlinga en þá var það gamla 14 ára læðan mín sem var að gjóta og allir kettlingarnir komu út vanskapaðir. Það vantaði á þá loppur og fleira og það voru afrifnar kettlingaloppur útum allt.
Þetta eru svo hræðilegir draumar að ég vakna oft grátandi yfir þessu eða bara í þvílíku kvíðakasti. Mig langar að vita hvort einhver veit hvað þetta gæti þýtt. Eg er að verða vitlaus á þessu.
KV Cat Lady<br><br>Aðgát skal höfð í nærveru sálar.
Aðgát skal höfð í nærveru sálar.