Ég hef ekkert sagt neitt það mörgum frá þessu útaf þeim ástæðum að fólk trúi mér einfaldlega ekki eða þá að þeir seti eitthvað út á mig. En ég hef lent í svona “draugareynslu”.. Það var fyrir svona 2 og hálfu ári, ókei, þetta var svona: Ég var nýbúin að fá kanínu, en svo meiddist hún á einhvern óskiljanlegan hátt og hún fór oft til dýralæknis en enginn vissi hvað þetta væri eða hvað olli þessu. Hún var eitthvað meidd í löppinni, bara hálflömuð, dró aðra löppina á eftir sér sem gerði það að hún gat ekki labbað. Hún kvaldist mjög mikið greyið þannig það var tekið þá ákvörðun að lóga henni:(! En svo eina nótt lá ég andvaka uppi í rúmi (ég á mjög erfitt með að sofa af einhverjum ástæðum).. en annars þá lá ég bara upp í rúmi og kanínan mín var eitthvað í búrinu þannig ég náði í hana og hún lá hjá mér uppi í rúmi. Ég snéri baki í hurðina en svo fann ég eitthvað bakvið mig, ég leit við og það stóð frekar ungur strákur í hurðinni minni, hann leit út fyrir að vera eitthvað um 18.ára gamall. Hann var í grænum buxum og strigaskóm, með skollitað hár og var í gulum bol með peacemerki á. Ég varð alveg skíthrædd og snéri mér aftur við og fór bara að gráta að hræðslu en svo sofnaði ég einhverntímann á þessum tíma þótt ég sé ekki viss hvenær. En hálftíma seinna vaknaði ég og þá var kanínan mín horfin. Hún var hvergi í rúminu mínu, ég gáði undir það og hún lá þar. Ég kallaði á hana og hún kom hlaupandi til mín, allt í lagi með hana. Ég tel nú að þessi skyndilega lækning tengist þessum draugi á einhvern hátt. En þetta var mjög skrýtin reynsla.