Ég var að spá fyrir vinkonu minni. þetta átti bara að vera saklaus spá um eitthvað sem ég man ekki alveg hvað er. hún getur séð sýnir eða hún segist hafa séð eitthvað þar sem hurðin á herberginu hennar er. hún sagðist hafa séð bláar útlínur, eins og allt hafi verið í vatni. Nokkru seinna sér hún handa og fótafar á gólfinu heima hjá sér. það var líka eins og það væri blautt en hún sá það aðeins í smá stund. hún hefur séð eitthvað þvílíkt nokkrum sinnum og ´hún var afskaplega hrædd á tímabili. á þessum tíma vorum við að prófa okkur áfram í kukli og erum reyndar að því núna. en þegar ég var að spá fyrir henni þá kom bikardrottningin upp fyrir henni. ég spáði aftur fyrir henni og bikardrottningin kom aftur upp. Lýsing bikardrottningarinnar er eitthvað í þessa átt. "Gáfuð kona [...] getur verið skyggn.