Ég hef alla ævi búið í Hveragerði og geri enn. Í nótt dreymdi mig að það væri búið að byggja kjarnorkuver rétt utan bæjarmarkanna sem Bandaríkjamenn (hverjir aðrir?) væru mikið á móti sökum þess að það gerði okkur að kjarnorkuvæddri þjóð, en þó áttum við engan her.
Mig dreymdi ekkert um einhverja pólitíska deilu milli BNA og Íslendinga, reyndar var enginn formáli að draumnum, heldur vissi ég bara að það væri langdrægt flugskeyti með kjarnaoddi á leiðinni að granda kjarnorkuverinu þegar draumurinn byrjaði. Og það var ekkert leyndarmál. Allir sem það vildu vita vissu að þetta skeyti væri á leiðinni en enginn gat aðhafst neitt, enda vorum/erum við því miður ekki hervædd þjóð.
Draumurinn byrjaði á því að ég og vinur minn vorum í húsi sem var mjög hrörlegt, í raun ekkert nema fjórir steinveggir (húsið er ekki til í Hveragerði). Okkur leið báðum eins og dauðinn væri vís. Við vorum að tala um hvort við ættum einhvern séns á að lifa þetta af. Í þeim töluðu orðum heyrðum við í skeytinu og það lenti á kjarnorkuverinu með tilheyrandi hávaða og sprengingum. Þegar herleg heitunum var lokið vorum við báðir lifandi, merkilegt nokk. Ég fór út úr kofanum sem við vorum í og leit í átt að staðnum sem kjarnorkuverið hafði áður verið á (suður af þjóðvegi #1) en það var rústir einar. Reyndar virtist sprengingin ekki hafa eyðilagt neitt nema verið og það sást aðeins á fjallinu sem það stóð undir. Auk þess hafði verið dagur þegar við heyrðum fyrst í skeytinu en nú var komið mikið myrkur, en þó var ekki kvöld.
Þá ákvað ég að fara og athuga hvort mínir nánustu (fyrir utan vin minn sem var með mér) höfðu einnig lifað þetta af. Bíllinn minn var við húsið sem við höfðum verið í fram að þessu en ég hljóp af einhverri ástæðu fram hjá honum og ákvað að hlaupa heim. Ég hlóp og hljóp og sá fullt af öðrum Hvergerðingum sem höfðu einnig lifað þetta af og voru að athuga skemmdir á eignum sínum.
Þegar ég var í u.þ.b. 1-2 mín. fjarlægð frá heimili mínu stoppaði ég því ég fann á mér að þeir einu sem höfðu látið lífið í þessari aðgerð BNA voru foreldrar mínir og systkyni. Í raun var það meira en bara tilfinning, það var staðreynd. Þó var enginn sem sagði mér þetta, þau voru bara einfaldlega dáin.

Þá vaknaði ég…

Ef einhver getur sagt mér eitthvað um þennan draum, bara hvað sem er, væri það vel þegið.<br><br><a href="http://kasmir.hugi.is/Hvati">Honda Civic 1500 LSi VTEC til sölu</a