Veit ikker hvað getur verið í gangi í húsinu mínu??? Sko ég flutti þarna inn fyrir 10.árum og þá var húsið nýbyggt….. Á þorláksmessu á síðasta ári vorum við fjölskyldan að horfa á sjónvarpið og útidira hurðin var opin (maður getur léttilega séð ganginn og hurðina útúr stofuni).. Á hurðini var stór krans.. Svo alltí einu NELDIST kransinn niður.. Ekki eins og hann hafi dottið.. Það var eins og hann hafi verið rifinn niður með þvílíkum ógnar krafti… Það voru engin merki um að einhver hafi bara komið og rifið hann niður því við höfðum tekið eftir því..

Svo daginn eftir eða á aðfangadag þá var ég í sturtu. Var með læst og enginn þarna inni.. Svo alltí einu heirði ég hljóð eins og það væri verið ýta speigli sem var uppi á hillu á gólfið.. Sko ég man eftir því að ég var að nota hann rétt áður en ég lagði hann á hilluna.. Ég setti hann alveg tryggilega á hilluna þannig að hann gæti ekki dottið. Og ég setti líka litla körfu oná spegilinn…… En hvað með það þegar þetta gerðist sá ég að spegillinn datt ekkert á gólfið því karfan var á sínum stað þarna á hillluni en spegillinn var í rústi……

Svo er einhver sál inní húsinu mínu sem ég held að ég viti hver sé… Ég er ekki skyggn en kona sem býr við hliðiná mér sér hluti sem ekki margir aðrir sjá og hún segir að þetta gæti verið afi minn heitinn…..
En alltaf þegar ég er einn heima og er ekki inní eldhúsi. (Bara inní herberginu mínu) heiri ég alltaf eins og einhver sé að hreifa til í leirtauginu. Fyrst var ég að míga á mig af hræðslu en ég er farinn að venjast þessu…..

En getiði sagt mér hvað þetta gæti hafa verið þarna um jólin?? Þetta hefur vakið miklar vangaveltur hjá mér og ég get ekki hætt að hugsa um þetta…..

Ég leitaði hingað því ég veit að sumir hérna eru ansi fróðir um svona……..
——–